Vefsíða
Netfang
Kort
Merkingar
Nánari upplýsingar
Krókur - á þinni leið
Krókur er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í flutningi og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð þar sem veitt er alhliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða fyrir þá sem þess óska.
Þjónusta Króks er aðgengileg allan sólarhringinn alla daga ársins í gegnum síma 522-4600. Afgreiðslutími bifreiðageymslu og bílauppboðs er frá kl. 8:30-17:00 alla virka daga.
Starfsfólk Króks hefur mikla reynslu og félagið hefur yfir að ráða öflugum bíla- og tækjabúnaði til að sinna þörfum viðskiptavina.
Helstu þjónustuþættir Króks eru:
Flutningur, björgun og vistun tjónaökutækja.
Uppboðsmeðferð bifreiða.
Tjónaskoðun bifreiða.
Ástandsskoðun og verðmat bifreiða.
Úttekt á viðgerðum ökutækja eftir stjórtjón.
Björgun, flutningur, vistun, varðveisla og sala lausafjármuna.
Vegaaðstoð á staðnum, rafmagn, dekk og fleira.
Undir vörumerki Króks er einnig starfræktur uppboðsvefurinn bilauppboð.is þar sem hægt er að kaupa og selja bifreiðar á auðveldan, hagkvæman og fljótlegan hátt.